Konni B.(ullari) |
|
![]() Konráð J. Brynjarsson{Vefbækur}Pannsan hans KáraKransinn Bleggur Guðni hinn rauði María Kristbjörg Viðarsson Kári Siggi Heiðarr Gunni Freyr Rúnar Gísla Mússa litla Olla systir Ármennið Raggi risi Jói skalli Gribba Mútter Benný {Karfa}Karfan.isKKDÍ.is KKÍ.is {Merkilegt}KvæðamannafélagiðUm Terry Pratchett Discworld teiknari Útvarp Reykjavík Prívatískur Banki Snildar teiknari Terry Pratchett Netþýðandinn Vef Villu-Púki Algjör snilld! Hebbi Gumm Heimstíminn Stríðsföndur Mozilla Séní Dvergakast Sveitasæla Fatapóker Netleikir2 Epguides Netleikir Egótripp Thottbot Formúla Garfield Pílukast Elfwood Gmail {Börnin mín}Birna Rún WaageBrynjar Halldór Páll Kristþór Arndís Inga Katla Rún {Eldra B.(ull)}![]() ![]() |
mánudagur, febrúar 27, 2006
"Dómarann í sturtu!" Í gær náði ég langþráðu markmiði. Ég dæmdi minn fyrsta leik í úrvalsdeildinni í körfu. Ég fékk símtal þar sem ég var spurður hvort ég væri tilbúinn í minn fyrsta úrvalsdeildarleik. Við þeirri spurningu er náttúrlega aðeins eitt svar, en einu rökrænu viðbrögðin eru þau að dansa viltan stríðsdans með tilheyrandi YES! öskrum og viðeigandi hnefakýlingum upp í loftið. Ég framkvæmdi dansinn eftir að hafa svarað spurningunni og lokið símtalinu. Ég brá undir mig betri fætinum á laugardaginn og skundaði upp á Skaga. Þar vísiteraði ég Herra Sigurð og Frú Berglindi og dvaldi í góðu yfirlæti þeirra. Þar snæddum við ásamt, Kára, Gunni, Ragga, Jóhanni Ásmundi og Önundi hundadagakonungi, dýrindis svínahamborgarahrygg með tilbehörende meðlæti. Var svo setið að spjalli og gleði fram eftir kveldi og jafnvel undir morgun í einhverjum tilfellum. Í alla staði hin prýðilegasta skemtan. Fleira ekki gjört, fundi slitið. miðvikudagur, febrúar 22, 2006
"Marga góða sögu amma sagði mér" Í dag fór fram æði merkilegur leikur í körfuknattleik. Þar áttust við lið frá Reykingamönnum og lið þeirra sem ekki reykja. Til að tryggja að allt færi nú friðsamlega fram, þá voru fengnir tveir dómarara. Nú til að tryggja óvillhallni þeirra þá voru fengnir til starfans dómarar háðir munntóbaki, sem báðir þola illa sígarettur. Leikurinn fór rólega af stað en þó tóku reykingamennirnir leikinn fljótlega föstum tökum. Það var rjúkandi stemming í liði þeirra og allt gekk þeim í haginn. Á meðan virtist einstaklingsframtakið ráða ríkjum meðal þeirra reyklausu og lítil sameining inni á vellinum. Í hálfleik leiddu reykingamennirnir með rúmum 20 stigum. En dæmið snérist heldur við þá þriðji leikhluti hófst. Þeir reyklausu höfðu greinilega tekið á sínum málum í hálfleiknum, búnir að finna styrk- og veikleika hvors annars og hvernig gengi best að tvinna saman liðsheild. Reykingamennirnir létu þó ekki sjá á sér neinn bylbug og svöruðu áhlaupi þeirra reyklausu í sama mund. Vendipunktur leiksins var þegar einn reykingamaðurinn sté í mórauðan poll, ættaðann úr munni eins dómarans, og sneri sig illa á ökla. Við það virtist sem allur vindur væri úr þeim reyktu, sem virstust líka vera farnir að þreytast all verulega. Þeir reyklausu héldu áfram eins og enginn væri morgundagurinn og voru búnir að jafna leikinn er þriðji leikhluti leið undir lok. Í fjórða leikhluta var aldrei spurning um hvernig leikar myndu enda. Reykingarmennirnir tíndust einn og einn útaf, ýmist með 5 villur eða vegna súrefnisskorts. Þegar lokaflautið gall stóðu reykleysingjarnir, þreyttir en ánægðir á meðan reykingamennirnir voru allir löngu farnir á lungnadeildina og dómararnir mórauðir í framan með svartar tennur hlupu eins og fætur toguðu í næsta vask. Fleira ekki gjört, fundi slitið. sunnudagur, febrúar 19, 2006
"...þú gætir jafnvel unnið Eurovision..." Hvað getur maður sagt um ungfrú Sivlíu Nótt? Skoðanir fólks á henni gætu fyllt hundruði síðna, þéttritaðra með minnsta mögulega línubili. Enda sýndi það sig um helgina. Silvía Nótt er kynnþokkafyllst íslenskra kvenna, að mati hlustenda Rásar 2, (en leikkonan Ágústa Elva sem ljær Silvíu líkama sinn til afnota lennti "aðeins" í 4. sæti) svo verður hún fulltrúi Íslands í Söngvakeppni Evrópska Sjónvarpsstöðva í Grikklandi í vor, enda söng hún klárlega langbesta lagið í keppninni. Það er verið að velja besta lagið, er það ekki? Ég hef ekki ennþá, og býst ekki við að það breytist, séð einn einasta þátt í sjónvarpsþáttaröðinni um ungfrúnna frómu og hlédrægu enda fer þessi stúlka all verulega í taugarnar á mér. En ég hef lúmskt gaman að henni samt, þessi öfgafulla steríótýpiska "celeb wannabe" er nefninlega skemmtilegur satýr á margt íslenskt. Ekki bara á hina fjölmörgu "raunverulegu" "celeb wannabes" sem keppast við að prýða forsíður hinna íslensku slúðurblaða, heldur ekki síður á engu minni öfgafulla þörf þjóðarinnar við að eiga "alvöru" "celeb". Hversu margir kannast ekki við það, í spjalli sínu við útlendinga, að þurfa nauðsynlega að koma því fyrir í samtalinu að amma Bjarkar Guðmundsdóttur hafi verið besta vinkona ömmu manns, eða eitthvað álíka bjánalegt. En hvað sem öðru líður þá á hún alveg örugglega eftir að vekja athygli. Fleira ekki gjört, fundi slitið. |