Konni B.(ullari)


Konráð J. Brynjarsson



This page is powered by Blogger. Isn't yours?
miðvikudagur, desember 14, 2005
 
"Dagur eitt, punktur. Kæri Jóli..."

Ég er ekki frá því að ég sé að komast í jólastuð. Get frætt lesendur á því að í dag þá lauk ég jólagjafakaupum og hljóp ég þrefalt heljarstökk afturábak af því tilefni (í huganum), því mér er alltaf gríðarlega létt þegar þessu verki er lokið. Ekki svo að skilja að mér leiðist að gefa jólagjafir, en það er mér þraut og pína að versla þær! Það stafar aðallega af því að ég fæ svokallað verslunaróþol eftir klukkutíma verslunarleiðangur. Það lýsir sér í ofvirkni svitakirtla, einbeitingarleysi og oftar en ekki verk í maga. Eina kunna lækningin við þessu er að hætta snarlega öllum innkaupum, drífa sig heim og koma helst ekki nálægt verslun í um 5 tíma. En mér s.s. tókst að hafa þetta af í tveim túrum án mikilla líkamlegra verkja. En það er ekki seinna vænna að koma jólaskapinu á því ég kem ekki til með að hafa tíma fyrir jólaskapið í næstu viku. Þá verður brjálað að gera í vinnunni og annara jólastress á eftir að setja beyglu í jólagleðina mína. Þó ekki stærri en svo að það réttist úr henni á leiðinni heim í sveitina á þorláksmessukvöld.

Ég gæti ritað hér annan langan pistil um jólastress landans, en þar sem flestir vita nákvæmlega hvernig landinn er þessa dagana þá væri ég bara að benda á hið augljósa.

Já svo var ég klukkaður af Jóa og því ber mér siðferðisleg skilda til að bregðast við.

1. Hvað er klukkan? 21:55

2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu? Konráð Jóhann Brynjarsson

3. Hvað ertu kallaður? Konráð, Konni, Bóbó, Andrés, Binni, Gunnar, Bjarni og restin af karlmannsnöfnum fjölskyldunar. Það tekur ömmu stundum smá tíma að lenda á því rétta.

4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmælisköku? 26

5. Hár? Já, ca. 2 mm lag á höfðinu.

6. Göt? Þau sem ég fæddist með og nokkur uppfyllt sem mynduðust sökum klaufaskapar.

7. Fæðingarstaður? Fæðingardeild Landspítala Íslands.

8. Hvar býrðu? Vesturbergi 78, íbúð 5F, 111 Reykjavík.

9. Uppáhaldsmatur? Sá sem ég er að borða.

10. Einhvern tíma elskað einhvern svo mikið að það hefur komið þér til að gráta? Það gæti verið, er of týpískt karlmenni til að láta það uppi.

11. Gulrót eða beikonbitar? Here piggy, piggy!

12. Uppáhalds vikudagur? Hverjum öðrum betri, þó eru þriðjudagar sístir.

13. Uppáhalds veitingastaður? Núna er það El Raco á horninu á Tryggvagötu og Tryggvagötu.

14. Uppáhalds blóm? Aloa Vera kaktus. (Eina blómið sem ekki hefur dáið í mínum meðförum.

15. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa? Körfubolti.

16. Uppáhalds drykkur? Ískalt Gvendabrunnarvatn.

17. Disney eða Warner brothers? Bæði betra.

18. Uppáhalds skyndibitastaðurinn? KFC er öflugur, en Stællinn er þó bestur!

19. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Ekkert teppi, parket mahogny litað.

20. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? Garfield.

21. Í hvaða búð mundir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Ég myndi nú bara alveg vilja sleppa því, en for the sake of the game þá segi ég... stærstu bókabúð heims (not online), hver sem hún nú er.

22. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? Þá er ég yfirleitt búinn að þrautreyna allt sem mér dettur í hug svo ég geri ekki neitt.

23. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? Ha? (Frá fólki sem hefur ekki verið að hlusta á það sem ég sagði)

24. Hvenær ferðu að sofa? Misjafnt, oftast um 12.

25. Hver verður fyrstur að svara þér þessu? Ómögulegt um að segja.

26. Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Flestir.

27. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Star Trek (allir), CSI, Veronica Mars o.flr.

28. Með hverjum fórstu síðast út að borða?? Hafdísi á Subway.

29. Ford eða Chevy? HUMMER!

30. Hvað varstu lengi að klára að svara þessu? 32 mínútur.


Fleira ekki gjört, fundi slitið.






 
"Er ekki lagið að verða búið? Það er búið!"

Which Fantasy/SciFi Character Are You?



Þar hafiði það, Yoda be I! Gaman að því. Ég ætlaði að segja eitthvað svo óskaplega skemmtilegt og alveg örugglega rosalega merkilegt og gáfulegt, en ég bara man það ekki. Svo...

Fleira ekki gjört, fundi slitið.






mánudagur, desember 12, 2005
 
"When you walk, through the storm. Hold your head up high, and don't be afraid of the dark [...]walk on, walk on, with hope in your hart and you'll never walk alone, YOU'LL NEVER WALK ALONE!"

Þetta lag er mér mjög hugleikið. Í fyrsta lagi þá er þetta aðal stuðningslag uppáhalds knattspyrnufélagsins míns, Liverpool og ég man ennþá eftir gæsahúðinni og geðshræringunni sem ég upplifði þegar ég heyrði tugþúsundir stuðningsmanna syngja þetta á Anfield í fyrsta sinn. Því miður var ég ekki þar, heldur hérna meginn við sjónvarpsskjáinn. Í annan stað þá er þessi texti svo einstaklega hughreystandi, uppbyggjandi og vongóður að það er vart annað hægt en að fyllast hálfgerðri lotningu við að heyra hann fluttann. Ég kemst meira að segja við yfir íslenskri þýðingu hans, þeirri einu sem ég hef heyrt, sem er í flutningi Óskars Péturssonar, sem ég held að sé einn af Álftagerðisbræðrum, allavega saungvari hinn mesti.

Ég hugsa að það hafi ekki farið framhjá mörgum að um þessar mundir þá er dagur skemmstur og fer birtustundum ört fækkandi. Þar til botninum er náð, við vetrarsólstöður þann 21. desember nk. Þá getur það ekki verið meira viðeigandi að halda hátíð ljóss, að fagna því með pompi og pragt, að nú fari dag að lengja á ný og yfirráð myrkurs taki að minka. Við sem játum kristna trú og flest afbrigði hennar, höfum reyndar kosið að splæsa fæðingarhátið frelsara vors, Jesú Krists, saman við hina ævafornu og hundheiðnu sólstöðuhátíð. Nokkuð sem ég tel hafa verið mjög snjallan leik hjá kirkjufeðrunum sem ákváðu að hinn opinberi fæðingardagur Jesú skildi vera 24. desember, þó svo að menn telji nú að í raun sé hann vog og fæddur í byrjaðan október, en það er aukaatriði.

Hinir stórgáfuðu pólitíkusar sem ákváðu að slá þessum tveim hátíðum saman, já eða endurfæða sólstöðuhátíðina sem Krists messu (e. Christmass), hafa nefnilega séð að með þessari aðgerð þá yrði auðveldara fyrir ný snúna heiðingjana að fagna kristnum hátíðum, þó ekki væri nema að nafninu til, þar sem þær báru einmitt upp á sama tíma og hinar gömlu heiðnu hátíðir. Lokahnykkurinn var svo settur á þetta með því að spyrna páskahátíðinni, þ.e. "dauðahátíð" Krists saman við sumarkomuhátíð hinna heiðnu, og tileinka einhverjum Jóni (sbr. Jónsmessa) miðsumarsnótt, sem er einhver magnaðasti heiðni helgidagur sem fyrirfinnst, ef frá eru talin áramótin. Með aðgerðum eins og þessum þá tókst hinum snjöllu pólitíkusum fornalda að festa kristnina í sessi sem aðal trúarbrögð þessa heimshluta.

Svo er náttúrulega til snjallt fólk sem sér alveg í gegnum þetta húmbúkk og neitar staðfastlega að fagna einhverjum hundheiðnum hátíðum. Sleppir því að halda jól, blæs á páska en djammar feitt einhverja aðra daga ársins, þegar við hin erum á fullu í hversdagnum og nennum ekkert að pæla í einhverju bulli. Þá er ég ekki að tala um fólk sem aðhyllist önnur trúarbrögð en kristni, heldur bara sína útgáfu af henni. Eins og t.d. Vottar Jehova. Þeir eru ákveðin útgáfa af puritönum, eða hreinstefnusinnum, sem vilja öll heiðin áhrif burt úr kristni. Það litla sem ég þekki af þeirra siðum og skoðunum í þessum málum, fær mig til að styrkjast í þeirri trú að kirkjufeðurnir á fornöld hafi verið alveg ótrúlega magnaðir gaurar, því ég fæ ekki séð að það sé neitt fútt í kristni ef maður tekur heiðnina út. Svo ég segi bara Áfram Þorgeir Ljósvetningur og allir hinir sem blóta æsi og náttúrvætti, dulbúna sem Jesú Krist og félaga.

Fleira ekki gjört, fundi slitið.