Konni B.(ullari)


Konráð J. Brynjarsson



This page is powered by Blogger. Isn't yours?
fimmtudagur, ágúst 26, 2004
 
"En spurningum Ara er ei auðvelt að svara:
"Pabbi, af hverju' er himinninn blár. Hví er afi svo feitur, því er
eldurinn heitur, þið eigið að segja mér satt!"
"

Í síðasta pistli þá ræddi ég mikið um heimili og skilgreiningar mínar á þeim. Ég held að ég hafi nú komist að ágætri niðurstöðu í þeim pistli og við því litlu að bæta. En ég hef ekki lagt af minn pælingasið, því fer víðsfjarri og eins og þeir sem mig þekkja vita, þá finnst mér fátt skemmtilegra en að pæla í hlutum. Dyggir lesendur mínir (sem flestir eru væntanlega horfnir á braut vegna ótíðra skrifa) muna kannski eftir pistlum um mál eins og ástina, hamingjuna og rétt manna til frjálsra tjáskipta. En hvað er það sem ræður því að sumir (eins og ég) geta ekki hætt að velta hlutum fyrir sér á meðan aðrir velta aðeins fyrir sér hvernig næsti dagur verður og báðir eru jafn hamingjusamir með tilveruna?

Í mínu tilfelli þá held ég að um sterka blöndu gena og uppeldisáhrifa sé að ræða. Ég hef alltaf verið rosalega forvitinn en um leið varkár og aðgætinn. Sem dæmi þá talar amma mín elskulega iðulega um það hversu handóður ég hafi verið, þ.e. alltaf að skoða alla hluti (þá sem fyrirfundust í hillunum hjá henni t.d.). En það þurfti samt sem áður aldrei að hafa neinar áhyggjur af mér, því allt sem ég tók það setti ég á sinn stað aftur að athugun lokinni. Þetta er náttúrulega enginn hegðun hjá ungu barni sem skv. flestu ætti að grípa hvað það sem athygli þess fangar og fleygja því svo frá sér (eða skilja eftir þar sem það stendur) þegar næsti hlutur stelur athyglinni. Ég var líka gjarn á það að spyrja múttu um hina undarlegustu hluti, og hér kemur að uppeldisáhrifunum, hún svaraði mér alltaf af fullri alvöru og leiddi mig (ef hún gat) í sannleikann um málið, án þess að klikja út með frösum eins og: "Þetta er bara svona!" Ég bjó líka að (og bý enn) ákaflega fróðum afa, sem hafði það að reglu að hlíða manni yfir hina ýmsu hluti og benda manni á aðra áhugaverða. Örnefni sem sjá mátti út um bílgluggann sem og bæjarnöfnin á leiðinni voru iðulega þulin upp og ég svo spurður út í á bakaleiðinni eða næstu ferð.

Því miður (skv. mínu mati) þá búa ekki allir jafn vel og ég. Ýmsir búa við það að fá aldrei önnur svör en "af því bara" við spurningum. Í fjölmörgum tilfellum eru þeir sem svara svona (og já ég hef gerst sekur um það líka) einfaldlega að breiða yfir eigin vanþekkingu. Það má alveg skilja það að margir fari í kút þegar barnið þeirra kemur fram með sakleysislega spurningu á borð við: "Af hverju er himinninn blár?" Fæstir vilja náttúrulega verða minni í augum barnsins síns með því að viðurkenna vanþekkingu sína (foreldrar eru jú guðir í augum barna á vissu aldursskeiði) en ég held að menn vanmeti oft gáfur barna, því börn missa mun frekar (tel ég) álit á foreldrunum þegar þau svo komast að niðurstöðu málsins og sjá þá að hið alvitra foreldri hafi verið rekið á gat. Ég held að það sé mun vænlegra að viðurkenna vankunnáttuna og kanna svo svarið og láta barnið vita þegar það er fundið. En ég er náttúrulega bara snardinglaður drengur...

Fleira ekki gjört, fundi slitið.







sunnudagur, ágúst 22, 2004
 

"Er ég kem heim í Búðardal, bíður mín brúðaval og ég veit það verður
svaka partý.
"

Jæja góðir hálsar ég hef snúið aftur. Ekki veit ég hversu löng sú viðvera verður, en vonandi einhvur. Ýmislegt hefur á daga mína drifið síðan ég reit síðast. Örstutt viðvera í vinnu hjá Byggingafélagi Kópavogs og svo aftur í Loftorkuna en þar hef ég alið manninn síðan um miðjan Júní. Það er alveg ágætt að vera á stað sem maður þekkir inn og út og ég get ekki kvartað undan ósanngirni eða illri meðferð yfirmanna, enda þeir feðgar afi minn og móðurbróðir hinir ágætustu menn, en það getur orðið talsvert þreitandi að búa í Reykjavík og vinna í Borgarnesi. Ég s.s. keyri á milli nær daglega. Einhverjir segja þá eitthvað á þá leið að ég geti nú sem auðveldast gist hjá vinum og vandamönnum, enda nóg af hvoru tveggja í mun skemmri akstursleið en þeirri sem sem ég tekst á hendur til Reykjavíkur. En það er lítið líf að vera sífellt gestur, þó í góðra húsi sé, því ég bý mitt heimili í höfuðborginni og þar er allt mitt hafurtask. Í framhaldi má svo skeggræða um hvar heimili manna séu, og í raun gerði ég það með sjálfum mér og velti þessu mikið fyrir mér.

Í dægurlagatexta gömlum frá Ameríku segir eitthvað á þessa leið: "...where ever he laid his hat was his home..." en þar var rætt um ókyrra sál sem hvergi fann sér samastað í lengri tíma. Á öðrum stað, einnig í henni Ameríku sögðu menn: "Home is where the hart is." Hvoru tveggja velti ég fyrir mér, þó seinnt verði um mig sagt að ég sé ókyrr, allavega hvað dvalarstaði varðar. Ég ryfjaði upp með sjálfum mér ummæli eins góðs vinar, sem sagði eitthvað á þá leið þegar hann var inntur eftir því hví hann væri ekki heima hjá unnustuni þar sem kræsingar væru á borð bornar, honum að kostnaðarlausu og aðhald allt hið besta. "Jú þar er gott að vera, en hér er allt dótið mitt og hjá því vil ég vera!" Ekki svo að skilja að þessi góði vinur sé óður efnishyggjumaður týndur í kapphlaupinu ógurlega um lífsgæðin, heldur var þarna undir meiri og dýpri merking þó honum tækist ekki að koma orðum betur að henni. Það er jú nefnilega þannig að mannskeppnunni líður sjaldnast betur en eftir dágott basl og flestir eru hamingjusamastir í umhverfi sem þeir gjörþekkja. Þegar þessu tvennu er svo spyrnt saman þá kemur út að eftir að menna hafa baslast við að koma sér og sínu dóti fyrir á einhverjum stað og svo eitt talsverðum tíma á þeim stað, búið og starfað og lært að þekkja hann að þá er komið heimili, þ.e. staður sem mönnum finnast þeir eiga (þó svo að húseignin sé annars) og hafa mótað í kringum sig. Þetta myndi vera það sem í daglegu tali kallast heimili.

Þessu hef ég komist að og upplifað. Ég sat í sófanum með bók í hönd og pældi og komst að þeirri niðurstöðu að ég væri í raun og sann heima. Tilfinningunni þyrmdi í raun yfir mig og ég fann þessa góðu tilfinningu um að ég væri kominn heim. Sem var náttúrulega alveg frábært ef ekki væri fyrir þá staðreynd að ég (og Kári og Hjalli) erum að fara að flytja. En þá hefst ferlið bara aftur og þar sem einhæfni og aðgerðarleysi er ekki alveg minn tebolli (svo vitnað sé í þekt Breskt orðatiltæki) þá er þetta bara hið besta mál.

Já við erum að fara að flytja. Valdi er fluttur út og býr nú með hýrri há ásamt henni Alrúnu sinni suður í firði og Guðni lagstur í sollinn í Harlem Íslands, Æsufellið nánar tiltekið. Svo eftir sitjum við Kári á Tunguveginum. En eins og áður sagði þá höfum við fengið íbúð, kósý pleis, í Rauðgerðinu u.þ.b. 500 metrum neðan við núverandi íverustað. Þangað stefnum við á að flytja um næstu helgi. Fleira fréttnæmt er varla af mér að segja, svo ég kveð í bili...

Fleiri ekki gjört, fundi slitið.