Konni B.(ullari) |
|
![]() Konráð J. Brynjarsson{Vefbækur}Pannsan hans KáraKransinn Bleggur Guðni hinn rauði María Kristbjörg Viðarsson Kári Siggi Heiðarr Gunni Freyr Rúnar Gísla Mússa litla Olla systir Ármennið Raggi risi Jói skalli Gribba Mútter Benný {Karfa}Karfan.isKKDÍ.is KKÍ.is {Merkilegt}KvæðamannafélagiðUm Terry Pratchett Discworld teiknari Útvarp Reykjavík Prívatískur Banki Snildar teiknari Terry Pratchett Netþýðandinn Vef Villu-Púki Algjör snilld! Hebbi Gumm Heimstíminn Stríðsföndur Mozilla Séní Dvergakast Sveitasæla Fatapóker Netleikir2 Epguides Netleikir Egótripp Thottbot Formúla Garfield Pílukast Elfwood Gmail {Börnin mín}Birna Rún WaageBrynjar Halldór Páll Kristþór Arndís Inga Katla Rún {Eldra B.(ull)} |
þriðjudagur, september 30, 2003
Það er nú meira hvað maður er duglegur. Bara skrifað tvo daga í röð, ég verð að leita læknis þetta getur ekki gengið svona áfram. Ég hefði átt að hafa færri orð í gær um líkamsrækt og kvabskekingar. Gerðist gríðar latur þegar heim var komið og svangur í þokkabót. Svo ég ákvað all snarlega að vera heima og brasa mér dýrindis málsverð með ORA fiskibollum, kjetbollusósu, kartöflumús og grænum baunum. Prýðis matur sem ég naut ekki bara í gærkveldi heldur aukin heldur í dag, þar sem afgangurinn kom með mér í vinnuna. Ég frétti af því í dag að árshátíð Bifhjólasamtaka Líðveldisins, Sniglanna verði haldin í Borgarnesi um helgina. Á Mótel Venus samkvæmt því sem ég kemst næst. Þannig að til uppgripa gæti komið hjá slagsmálahundum bæjarins, en ég mun reyndar draga vitsmuni hvers þess manns stórlega í efa sem ætlar að stofna til illinda við hóp af leðurklæddum bifhjólamönnum. Jæja látum staðar numið... Fleira ekki gjört, fundi slitið. |